Alto Rouge Stellenbosch Suður Afríka 2020 Coastal Region
Vínið er blanda af Cabernet Franc, Cabernet Sauvignon, Merlot, Petit Verdot og Syrah og fær smávegis einkenni frá þeim öllum. Mjög ávaxtaríkt í nefinu með kirsuber og plómu til að byrja með og fer svo í eikar og jarðvegs einkenni. Bragðgott vín þar sem fyrst kemur keimur af plómu, sólberjum og espresso, og síðan þurrleiki og tannín í lokin. Tilbúið til að drekka núna og passar frábærlega með grillkjöti að mínu mati. Má geyma í 4-5 ár í viðbót til að fá örlítið meiri þroska.
Þó að þetta vín hafi verið til í Á.T.V.R. í þó nokkuð mörg ár hefur það því miður fallið í smá gleymsku á undanförnum árum, þrátt fyrir mikil gæði miðað við verð.
Bragðgott og bragmikið vín frá mjög góðum árgang (2016), vínið er mjög opið í nefinu með eikar, kaffi, ristað brauð og sólberja sultu einkenni. Bragðið er þurrt, og tannínríkt til að byrja með en hægt og rólega mýkist það og verður ávaxtaríkara og með góðum keim af brómberja sultu, kaffi og villisveppum. Vínið er tilbúið núna en getur þroskast betur á næstu 2-3 árum. Frábært vín með lamba og nauta réttum.

Ef þú vilt panta meira magn en stendur að sé til boða endilega hafðu samband í gsm:774-6526 eða info@okkarvin.is og ef það er til getum við reddað því á næsta sólarhring.
Spænskir vín aðdáendur ættu ekki að láta þetta vín fram hjá sér fara, enda er þetta ekta Rioja Crianza eins og það gerist best. Ristuð eik, kaffi og örlítil vanilla kemur fyrst í hugann hjá manni þegar þetta vín er smakkað og lyktað af því, svo kemur ljúfengur kirsuberja keimur og krydd strax á eftir. Eins og öll góð Crianza er vínið tilbúið að drekka núna og er frábært eitt og sér með góðum vinahóp eða með ekta ost og kjöt platta eða tapas. Þess má geta að vínið er með vegan vottorð.
Ef þú vilt panta meira magn en stendur að sé til boða endilega hafðu samband í gsm:774-6526 eða info@okkarvin.is og ef það er til getum við reddað því á næsta sólarhring.
Ef þú vilt panta meira magn en stendur að sé til boða endilega hafðu samband í gsm:774-6526 eða info@okkarvin.is og ef það er til getum við reddað því á næsta sólarhring.
Ef þú vilt panta meira magn en stendur að sé til boða endilega hafðu samband í gsm:774-6526 eða info@okkarvin.is og ef það er til getum við reddað því á næsta sólarhring.
40% 70 cl. Ef þú vilt panta meira magn en stendur að sé til boða endilega hafðu samband í gsm:774-6526 eða info@okkarvin.is og ef það er til getum við reddað því á næsta sólarhring.
Til að veita þér persónulega verslunarupplifun notar síðan okkar vafrakökur. Með því að halda áfram að nota þessa síðu samþykkir þú stefnu okkar um vafrakökur.