Um okkur
Um okkur
Stefán Guðjónsson hefur verið viðloðandi vín og vín umfjöllun í mörg ár. Á sínum yngri árum tók hann þátt í ýmsum vínþjónakeppnum hérlendis og meðal annars vann hann fimm sinnum og lenti í öðru sæti fimm sinnum af tíu keppnum sem hann tók þátt í.
Einnig tók hann þátt fyrir hönd Íslands í Evrópu keppni tvisvar, heimsmeistaramóti einu sinni og norðurlandamóti nokkrum sinnum.
Stefán hefur skrifað um vín í nokkur tímarit, verið með sjónvarpsþátt á ÍNN sálugu, gefið út DVD um vín og er með vefsíðuna www.smakkarinn.is.
Stefán er lærður framreiðslumeistari og hefur lokið 172 tíma vínþjóna námskeiði í MK sem hluta af meistaranáminu. Hann er með fyrsta stig í Court of Master Sommeliers og var nýverið að ljúka þriðju gráðu af fjórum í Wine and Spirit exchange (WSET) með stefnu á að klára hæstu gráðuna á næstunni.
