Enn einn „blast from the past“ framleiðandi sem er þekktastur fyrir að „klæða“ flöskur í sekki, er vín frá hinum vinsæla Rioja framleiðanda Siglo. Núna verður fjallað um Siglo Tempranillo 2018, vín sem er frekar ungt og ferskt með mikið af kirsuberjum og rauðum berjum í bragði og nefi. Eftirbragðið er meðal langt og þægilegt. Þetta vín passar vel með kjúkling, grísakjöti eða jafnvel laxi fyrir þá sem eru að leita að rauðvíni með fiski. Þetta er ekki vín til að geyma heldur að njóta strax.
Létt og ávaxtaríkt vín með keim af kirsuberjum, jarðaberjum, þurrkuðu kryddi og sveppa bragði. Eftirbragðið er meðal langt og ávaxtríkt.
Ef þú vilt panta meira magn en stendur að sé til boða endilega hafðu samband í gsm:774-6526 eða info@okkarvin.is og ef það er til getum við reddað því á næsta sólarhring.
Til að veita þér persónulega verslunarupplifun notar síðan okkar vafrakökur. Með því að halda áfram að nota þessa síðu samþykkir þú stefnu okkar um vafrakökur.