Námskeið í Vínsmökkun

Vín og hátíðar matur.

Ertu í erfiðleikum með að velja vín með hátíðar matnum? Ertu ekki viss hvað passar með hangikjöti, hamborgarhrygg, lambalæri eða kalkún?

Á þessu námskeiði sýnir Stefán Guðjónsson vínþjónn ykkur hvaða vín gerir matinn betri.

Innifalið er smakk á fjórum vínum, bæði rautt og hvítt, og smakk á fjórum vinsælustu tegundum af hátíða mat.

Verð: 9.500 kr. á mann og lágmarks fjöldi 10 manns.

Pítsa og vín

Pítsa er einn vinsælasti matur á Íslandi í dag, en vissir þú að vín getur verið rosalegagott með pítsu? 

Á þessu námskeiði fræðir Stefán Guðjónsson einn helsti vínþjónn á Íslandi, ykkur um hvaða vín passar með hvaða pítsu, t.d. hvað er gott með pepperoni, eða mexíkóskri? 

Smakkað verður á fjórum tegundum af víni og fjórar pítsur og rætt um hvaða vín passar best með hvaða pítsu. Námskeið er á léttum og skemmtilegum nótum.

Verð: 8.500 kr. á mann og lágmarks fjöldi er 10 manns.

Fjögur vín og fjórar þrúgur

Stefán Guðjónsson leiðir þátttakendur í gegnum fjögur vín og fjórar þrúgur. Stefán kennir að lykta af og smakka vín, útskýrir muninn á vínþrúgunum og hvaða matur fer best með hvaða þrúgu.

Innifalið er 4 mismunandi rauðvín ásamt skemmtilegri fræðslu í góða klukkustund auk „spurt og svarað“ í u.þ.b. 30 mínútur þar sem Stefán svarar spurningum hópsins um vín. 

Verð: 5.900 kr. á mann og lágmarks fjöldi er 10 manns.

Hvítvíns námskeið:

Smakkað er á 4 helstu hvítvínsþrúgunum, munurinn á þeim er útskýrður á ítarlegan en skiljanlegan hátt. Farið er í gegnum hvaða matur fer best með hvaða hvítvíni og af hverju, og hvernig er best að drekka vínin.

Verð: 5.900 kr. á mann og lágmarks fjöldi 10 manns.

Rioja námskeið:

Vín frá Rioja á Spáni eru án efa með vinsælustu vínum sem seld eru á Íslandi í dag, en margir gera sér ekki grein fyrir mismunandi tegundum af Rioja vínum. Hér verður smakkað á og útskýrður munurinn á 4 helstu tegundum i Rioja, Sin Crianza, Crianza, Reserva og Gran Reserva. Fjallað verður á léttum nótum um framleiðslu aðferðir í Roja og með hvaða mat vínið passar best.

Verð: 6.900 kr. á mann og lágmarks fjöldi 10 manns.

Freyðivíns og kampavíns námskeið:

Allt sem þú vilt vita um freyðivín og kampavín, smakkað verður á mismunandi tegundum af freyðivíni, t.d. spumante, prosecco, cava, demi sec og svo brut kampavín. Hægt er að hafa eingöngu kampavín eða eingöngu freyðivín, allt eftir óskum hópsins.

Verð: 6.900 kr. á mann, en 9.900 kr. ef tekið er eingöngu kampavín. Lágmarks fjöldi 10 manns.

Ath. Innifalið í öllum námskeiðunum er smakk á víninu (4-5 tegundir). Hægt er að kaupa meira af því víni sem var verið að smakka á sanngjörnu verði. Gert er ráð fyrir því að námskeiðið taki klukkutíma og svo hálftími í spurt og svarað í lok námskeiðsins.
Einnig hægt að verða við óskum um fræðslu um önnur vín eða vínsvæði.

Panta núna


Select the fields to be shown. Others will be hidden. Drag and drop to rearrange the order.
  • Image
  • SKU
  • Rating
  • Price
  • Stock
  • Availability
  • Add to cart
  • Description
  • Content
  • Weight
  • Dimensions
  • Additional information
Click outside to hide the comparison bar
Bera saman