Skilmálar okkarvin.is
1. Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu okkarvin.is Eigandi okkarvin.is er Smakkarinn ehf kt Þorláksgeisli 21, 113 Reykjavík. Hér eftir okkarvin.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur okkarvin.is annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Þessir skilmálar eru samþykktir við innskráningu eða fyrstu vörukaup eða þjónustu.
„Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 20 ára „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. Okkarvin.is selur vörur eða þjónustu til kaupanda í gegnum vefverslun sína. Okkarvin.is býður kaupanda að fá vöruna senda á næstu Dropp stöð eða fá hana heimsenda með Dropp
2. Upplýsingar um verð
Verð í vefverslun okkarvin.is og í sendum markpóstum eru með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. okkarvin.is áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Okkarvin.is mun hafa samband við viðskiptavin og bjóða nýja vöru eða endurgreiðlsu
3. Persónuuplýsingar
Hér getur þú nálgast persónuverndarstefnu okkarvin.is.
4. Greiðsla
Hægt er að greiða á ýmsa vegu hjá okkarvin.is
- Kort: hægt er að greiða samtímis með debit- eða kreditkorti. Greiðsla með korti fer í gegnum örugga greiðslugátt frá Fjárflæði.
- Netgíró: Hægt er að greiða með því að nota Netgíró, færist þá viðskiptavinur inn á greiðslusíðu netgíró og greiðir þar.
- Millifærsla: Hægt er að greiða með því að millifæra inn á reikning okkarvin.is eins og kemur fram við greiðslu fer pöntun í gang um leið og greiðsla hefur borist inn á reikning okkarvin.is
5. Skilaréttur
Aðeins er tekið við vörum í óopnuðum umbúðum hjá okkarvin.is. Nema um gallaða vöru sé að ræða er varan endurgreidd að fullu innan 2 mánaða frá því að neytandi varð var við galla. Smakkarinn ehf áskilur sér að sannreyna að varan sé gölluð.
6. Annað
Okkarvin.is áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum í þessum skilmála, kaupanda verður tilkynnt um þær breytingar sem mun verða á þessum skilmálum.
7. Varnarþing
Rísi upp ágreiningur um þessa skilmála má reka mál vegna þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr 91/1991.
